Atli Steinn Guðmundsson

Þessi dálkur hefur að geyma almennar hugleiðingar um lífið á hinum dags daglega grundvelli og mætti kalla nokkurs konar rafræna dagbók (hins vegar held ég einnig dagbók á pappír og hef gert linnulítið frá 1982 NB).
Utanborðsmótor á svín
Fimmtudagur, 02 September 2010 21:10
lifrarpylsubitiÍ dag fékk ég loksins að upplifa þá sælu á ný að læsa tönnunum í íslenska flatköku með lifrarpylsu. Elli er nýkominn frá gamla landinu og tók netta innkaupaferð fyrir okkur. Flatkökur, lifrarpylsa, SS pylsur, parkódín forte og íslenskt brennivín. Þetta síðasta tvennt vekur ef til vill ugg hjá einhverjum en kemur til af tvennu: Hér er lífsins ómögulegt að kaupa sterkari lyf en C-vítamín út úr apóteki án þess að hafa lyfseðil í þríriti með innsigli Noregskonungs. Við reyndum að kaupa Treo í júní þegar konan fékk aðkenningu að hitavellu og var þeim umleitunum mætt með kaldhæðnislegu glotti í apótekinu. Reyndar er búið að úthluta okkur heimilislækni hérna en ég hreinlega nenni ekki að fara að útlista fyrir einhverjum Hans Christian eitthvað (sennilega Andersen) hve gott það sé nú að eiga verkjalyf á heimilinu. Þess vegna var sent eftir parkódíni til Íslands. (MYND: Enginn veit hvað átt hefur - flatkaka með lifrarpylsu. Glöggir lesendur kunna að sjá að skegg mitt er horfið á braut en það helgast af yfirgengilegum reglum norskra matvælaframleiðenda um skegghlífar sem gera það að verkum að ég lít út eins og múslimi dulbúinn sem strangtrúaður gyðingur og fólk dauðsmeykt við að ég muni sprengja mig í loft upp í þristinum sem ég tek til og frá vinnu. Það hef ég þó aldrei gert.)

Íslenska brennivínið er svo eingöngu til þess að hrella Norðmenn í innflutningsteitinni okkar 11. september næstkomandi. Þar verður boðið upp á staup af íslensku brennivíni ásamt lifrarpylsubita og í kjölfarið verður ælukeppni í garði nágrannanna. Þetta kann að hljóma uggvænlega en er þó hjóm eitt við hlið uppátækja norska tónlistar-, útvarps- og sjónvarpsmannsins Kristopher Schau sem leiðir þungarokksveitina The Cumshots. Árlega halda þeir félagar mikla tónleika þar sem stólpípukeppni áhorfenda er meðal fastra liða. Stórumdeilt skemmtiatriði á hátíðinni í fyrra var þegar hljómsveitin setti utanborðsmótor á svín og skellti því í næsta vatn. Ég veit ekki hvernig það fór.

Rokkhátíðin Rått & råde, sem verður árleg héðan í frá, er nú haldin í fyrsta sinn á Lassa stadion sem er hér stutt frá okkur. Fjarlægðin er ekki meiri en svo að við getum hlustað af svölunum. Það eru ekki minni menn en hinir innfæddu A-ha sem eru aðalnúmerið í kvöld en á morgun eiga Prodigy sviðið og sjálfur Ozzy rekur svo smiðshöggið á verkið á laugardaginn. Við ætlum að skella okkur á Prodigy á morgun og rifja upp hroðalega för á tónleika með þeim í Laugardalshöll 15. október 2004 þegar ég fór á tónleikana í inniskónum mínum. Þetta mun ég heiðra með því að fara í sömu inniskóm á tónleikana á morgun.
 
Eldhús sannleikans og klósett dauðans
Miðvikudagur, 01 September 2010 20:54
eldhus-daudansMatreiðsluþáttur Orkuveitunnar er að slá í gegn á heimsvísu. Stífustu hreinlætisreglur á þeim tveimur vinnustöðum sem ég hef starfað á hér í Noregi, sjúkrahúsi og matvælaframleiðslufyrirtæki, virðast sem húsreglur í blokk í samanburðinum en eru þó ekkert grín. Í núverandi starfi mínu hjá Nortura er starfsfólkið til dæmis sífellt að skipta um föt. Maður fer til dæmis ekki út úr framleiðslusalnum án þess að skipta um alklæðnað og þvo og sótthreinsa hendur. Sérstökum skóm er meira að segja úthlutað fyrir ferðir í kaffi og mat og nefnast hléskór (n. pausesko).

Þetta gerir það að verkum að klósettferðir eru ekkert grín enda eru þær farnar út fyrir öll framleiðslusvæði. Í kjöthreinlætisnámskeiði, sem tekið er á vefnum og er skilyrði starfs hjá Nortura, er meira að segja að finna ítarlegar leiðbeiningar um kamarferðir og spurt út í þær á lokaprófinu. Brot námskeiðsins er eins konar tölvuleikur þar sem maður stýrir kalli um klósettið. Ekki beint á háskólastigi en reyndar margt fróðlegt um reglur í kjötiðnaði sem ég þekkti lítið til.

Ein bylting við klósettin í Nortura er að til þess að forðast að snerta þau með berum höndum er svört skífa með skynjara ofan á klósettinu. Ætlast er til að gestir haldi útréttum lófa í 3 - 8 cm hæð yfir þessu og þá sturtar klósettið niður. Miði með leiðbeiningum um þetta er staðsettur fyrir aftan mann þegar maður horfir á klósettið svo ég byrjaði á að rífa skífuna af. Ekki virkaði það. Kom ég þá auga á gráa málmstöng á veggnum og þóttist nú hafa leyst gátuna. Þetta reyndist hins vegar (tómur) klósettrúlluhaldari og svignaði hann þar til hann hrökk af veggnum. Ég snerist þá á hæli og hugðist laumast út án þess að sturta (enda bara minni aðgerðin á ferðinni) og blöstu þá leiðbeiningarnar við mér. Má ég þá frekar biðja um gömlu ljósnemana sem voru bylting á almenningsklósettum fyrir 30 árum. Alveg einkennandi fyrir Norðmenn að þurfa að vera með sitt eigið kerfi.

Annars fylgir því hálfgerður tómleiki að vera hættur að skúra á háskólasjúkrahúsinu. Þetta var býsna þægileg vinna fyrir utan nokkur meltingartengd tilfelli sem ég hef áður lýst í pistlum hér og þarna verð ég nú að játa að ég heyrði minn fyrsta og eina ræstingabrandara. Hann fjallaði um konu sem vann við þrif í margra hæða skrifstofuhúsnæði og endaði alltaf á að þrífa lyftuna á hverri hæð sem var auðvitað alltaf sama lyftan. HA HA HA!!! Þessi þótti óborganlegur í ræstingadeildinni og vildu margir meina að sagan væri sönn.
 
Meyfæðingin
Þriðjudagur, 31 Ágúst 2010 20:44
kariogbarnÞað er nú ekki á hverjum degi sem fjölgun verður í minni fjölskyldu en nú bar svo við aðfaranótt föstudags síðastliðins að Kári bróðir gat af sér meybarn eitt allfagurt er vigtaðist þegar 12,5 merkur. Þar með hef ég eignast náfrænku, Kári er orðinn pabbi og pabbi afi. Fólk í minni fjölskyldu (og ætt) er með því rólegra til barneigna enda er þetta fyrsti náni ættinginn sem ég eignast síðan hinn nýbakaði faðir barst í þennan heim haustið 1979. Ég verð að bíða jóla með að kynnast nýfrænkunni í eigin persónu. (MYND: Bróðír minn og frænka.)

Óvænt handbremsubeygja var tekin í atvinnumálum þegar mér bauðst starf á haustslátrunarvertíð hjá Nortura og byrjaði þar að saga niður lömb af krafti í gærmorgun sem er hin besta skemmtun. Ég er auðvitað ekki í slátruninni sjálfri heldur allri eftirvinnslunni og nú stefnir í ógurlega yfirvinnutörn þegar aðallambavertíðin byrjar í næstu viku. Lömbin þagna.

Ég fer úr einu stórfyrirtækinu í annað, hjá Nortura vinna um 6.000 manns eins og á sjúkrahúsinu, þar sem ég hóf moppu á loft í hinsta sinn á sunnudaginn, en staðsetningin er því miður ólík og er Nortura með kjötvinnslu sína uppi í Forus, örskammt frá þar sem við bjuggum fyrstu mánuði dvalarinnar. Strætisvagnasamgöngur eru því hafnar af krafti á nýjan leik.

Auk þessa er komið haust hér í Stafangri. Haustkoman er mjög afgerandi, einn daginn kemur haustið bara og þetta var á sunnudaginn fyrir viku. Einkum er þetta mælanlegt á auknu regni en reyndar var þó sól og blíða núna um helgina. Gróður er þó hægt og bítandi að taka á sig haustliti. Það er alltaf jafnhressandi.
 
Kyrkj'ann!
Miðvikudagur, 25 Ágúst 2010 22:44
spiritualÚrslit dagsins í Kastljósinu liggja nokkuð ljós fyrir: Illugi Jökulsson 1 - séra Þórhallur Heimisson 0. Það hefur sennilega aldrei gerst síðan mælingar hófust að Helgi Seljan nánast þegi heilt viðtal en hann sagði varla múkk í þætti kvöldsins. Ég var býsna ánægður með málflutning Illuga sem hvað eftir annað rak blauta tusku framan í séra Þórhall. Einkum var ég ánægður með þá einföldu rökfærslu Illuga að það væri ekki réttlátt, hvorki gagnvart trúleysingjum né þegnum annarra trúflokka en kirkjunnar, að eitt trúfélag væri samofið íslenska ríkinu. Þetta er alveg rétt ef maður nennir að íhuga það.

Ég skráði mig úr þjóðkirkjunni árið 1991 og var 11 ár í Ásatrúarfélaginu sem var mjög skemmtilegt. Þarna kom fólk saman, drakk brennivín og ræddi fornar sögur. Í þjóðkirkjunni kemur fólk bara saman. Það er ekki einu sinni bar í henni. Núna er ég skráður í félag zen-búddista á Íslandi en mér finnst búddismi satt að segja einu trúarbrögðin sem nálgast lífið af einhverri skynsemi - þar eru menn ekkert að stressa sig á hlutunum. Búdda var kannski feitur en hann vissi sínu viti.

Þráinn Steinsson, minn gamli drykkjubróðir og samstarfsfélagi af Bylgjunni, er hins vegar ásatrúar, eða eins og hann orðaði það: 'Já, ég trúi alveg á Ása, hann býr í Neðra-Breiðholtinu.'

Kirkjan er ekki í sérstaklega góðum málum eins og sakir standa, hvorki sú lúterska né kaþólska. Búið að liggja á sóknarbörnunum hægri og vinstri í báðum deildum. Sennilega er málum svo komið nú að staðan er orðin lík því er prestar áttu í kjaradeilu á níunda áratugnum og þulur Ríkisútvarpsins lauk frétt um málið á þessum orðum: 'Og nú er svo komið að prestar geta ekkert annað en beðið.'
 
Sértæk tekjuöflun...er það eitthvað út á skyr?
Þriðjudagur, 24 Ágúst 2010 22:40
skattar2Mikið er ég feginn að vera fluttur frá Íslandi eftir að hafa hlustað á frétt RÚV í kvöld um það sem Steingrímur J. kallar sértæka tekjuöflun ríkissjóðs, með öðrum orðum skattahækkanir. Næstu tvö ár mun ég, sem nýbúi í Noregi, greiða 20 prósenta tekjuskatt til að auðvelda mér aðlögun að þjóðfélaginu. Staðgreiðsluskattur er 36 prósent en mismunurinn fæst endurgreiddur við álagningu í júní ár hvert.

Ég hafði töluvert álit á Steingrími þegar hann var í stjórnarandstöðu en gamli jarðfræðingurinn er á villigötum núna. Síðasti fjármálaráðherra var dýralæknir. Ég velti því alvarlega fyrir mér að sækja um stöðuna næst þegar hún losnar, sem verður væntanlega brátt. Íslenskufræðingur myndi varla gera verri hluti en hinir tveir.

Eftir að ég fékk nýjasta DV sent hingað út sé ég að ég nauðaþekkti Hannes Þór sem var myrtur í Hafnarfirðinum. Hann var fastagestur á Gauknum þegar ég var í dyrunum þar í fyrra skiptið, mars til október 1995. Mjög viðkunnanlegur piltur, ég get tekið undir það með viðmælendum DV. Íslenskar morðrannsóknir sem teygja anga sína til Litháen eru slæmar fréttir. Þá finnst mér nú lítið mál í samanburðinum að Einar Ingi og félagar séu loksins að fá að stofna Hells Angels-deild á Íslandi. Dómsmálaráðherra fer að mínu viti offari í sókn á hendur þeim piltum. Mér er það til efs að Einar og vinir hans aki um rænandi og myrðandi eftir að þeir fá að skreyta sig með merkjum Vítisenglanna.

Ég var einmitt að spjalla við félaga í Hells Angels hér í Noregi um helgina en sá liggur slasaður á háskólasjúkrahúsinu eftir vélhjólaslys. Hann er mikill áhugamaður um húðflúrmenningu á Íslandi og sleppti mér ekki fyrr en ég hafði sagt honum allt um Jón Pál Halldórsson og almennt um íslenska flúrara en sem kunnugt er hefur enginn annar en Jón Páll fengið að stinga í mig nál, fyrst 15. júlí 1995 á gamla JP Tattoo niðri á torgi. Sú mynd átti 15 ára afmæli nú um daginn.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

midnet_module

vaxtarvorur_module

logo_balt-small


Hafðu samband

1000 stafir eftir
8 + 1 =